r/Iceland • • 10h ago

Við bitum aftur á agnið, á meðan við rífumst um innflutt menningarstríð sleppa valdahafar við erfiðar spurningar

71 Upvotes

Plís, fjölmiðlar, pikkið þennan Reddit þráð upp!

Jæja, við bitum á agnið. Fjölmiðlar bitu á agnið. Enn einn dagurinn, enn eitt innflutta menningarstríðið frá hægrinu. Í þetta sinn er nýja menningarstríðið og afvegaleiðingin mótmælin í Frakklandi (en Frakkar eru vel að merkja nánast heimsmeistarar í mótmælum, ég meina halló Franska Byltingin!). Þau snúast í raun um niðurskurð í menntakerfinu, lífskjör og vaxandi ójöfnuð. Þeir sem hafa farið fremstir í skipulögðum skemmdarverkum gegn bönkum og lögreglu eru róttækir anarkistar, hvítir, innfæddir Frakkar. Unglingarnir úr úthverfunum sem hafa gripið til búðarána eru nánast allir franskir ríkisborgarar, fæddir og uppaldir þar í landi, en ekki erlendir innflytjendur.

En fyrir fjarhægrinu skiptir það engu máli. Staðreyndir skipta engu máli. Elliði Vignisson, bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins í Ölfusi, deildi gamalli mynd frá öðru landi sem tengdist mótmælunum í Frakklandi ekki neitt. En fyrir Elliða skiptir það engu máli, honum er drullusama, svo lengi sem við rífumst ekki um hans mál eða tjah, kannski svo lengi sem við hættum að pæla í risamarkaðsmisnotkun Ölgerðarinnar sem Kveikur var að afhjúpa í síðustu viku? hver veit. Btw, þetta er sama mynd og Eldur Deville deildi á X. Nú fer þetta eins og eldur um sinu. Það er verið að prufukeyra nýja frasa og stikkorð til að ná fram athygli, prófa áróður, afvegaleiða umræðuna og safna atkvæðum fyrir framtíðina. Fokk hvað ég er þreytt á þessu.

Ég og maðurinn minn erum orðin svo þreytt á þessum endalausu menningarstríðum sem dælt er yfir okkur til að dreifa athyglinni. Hvað ætli Elliði hafi stungið miklu undan skatti? Hvað ætli spillingin sé mikil í kringum hann og fleiri? Talandi um menningarstríð. Sigmundi Davíð er alveg drullusama um woke eða innflytjendur. Hann vill bara að við rífumst um það svo aflandsfélögin hans fái að vera í friði. Hvernig væri að við færum að krefjast þess að fjölmiðlar spyrðu hann út í það? Eða tengsl hans, og hans flokk og hluta Sjálfstæðisflokksins við MAGA og Heritage Foundation?
Ég er orðin langreytt. Hvernig væri að við færum fyrir alvöru að ræða vistheimilin á Íslandi, þar sem ekkert hefur verið lagað og misnotkun á börnum þar heldur áfram, þrátt fyrir endalaus loforð stjórnvalda árum saman? Hvernig væri að ræða fákeppnina hérna, gífurlega valdaþjöppun og nútímaólígarkisma stórútgerðarinnar? Endalaust þögult samráð olíufélaganna, matvörurisanna o.s.frv.? Spilltar löggur? Namíbíumálið og Samherja einhver? Skattaskjól valdahafa og stjórnmálamanna? Eða endalausar hækkanir á matvöruverði? Aflandsfélög póltíkusa? Ég get haldið endalaust áfram og komið endilega með fleiri dæmi!

Á meðan einhver þingmaður, bæjarstjóri, hægri hlaðvarpsstjóri eða áhrifavaldur hendir fram umdeildri fullyrðingu og kveikir nýtt bál, bitum við alltaf á agnið. Við eyðum orkunni í að rífast á samfélagsmiðlum á meðan mun mikilvægari mál varðandi daglegt líf okkar fá enga athygli.
Þar má nefna fjárfesta sem eru að sölsa undir sig húsnæðismarkaðinn, sjókvíaeldið, loftslagsbreytingar, skattaskjól, aflandsfélög og stórútgerðina sem stundar nútímaólígarkisma og er að sölsa undir sig íslenskt samfélag eins og það leggur sig. Það er kominn tími til að við hættum að láta afvegaleiða okkur og draga okkur alltaf út í menningarstríð, og förum þess í stað að fylgjast með og ræða það sem raunverulega skiptir máli.

Edit; bara svo posturinn misskiljist ekki. Að sjálfsögðu eiga fjolmiðlar að afhjúpa það þegar kjörnir fulltrúar deila ósannindum og lygjum og kalla út bullshitið! Það er skylda þeirra og gífurlega mikilvægt!
Pointið mitt er frekar hvernig umræðan þróast í kjölfarið. Í stað þess að fókusinn sé á að afhjúpa lygina og spyrja "af hverju er bæjarstjóri að nota falsfréttir til að afvegaleiða umræðuna?“, þá fer öll orkan í að rífast um menningarstríðið sjálft.


r/Iceland • • 13h ago

Bæjar­stjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“

Thumbnail
visir.is
45 Upvotes

Hreinni birtingarmynd Trumpisma í íslenskri pólitík/umræðu finnst varla:

1: birt mynd sem að tengist ekki efninu , og án skýringa á hvar og við hvaða tilefni hún er tekin, en er ætlað að mynda neikvæða tengingu við hóp fólks byggt á rasískum staðalmyndum.

2: Tilraun til húmors með því að láta hótfyndni texta fylgja.

3: Svo þegar viðbrögð koma er þrætt fyrir alltsaman, allt sagt vera í gríni en samt ekki, því að skilaboðin séu sönn.

4: Svo í lokin komið með klassíska talpunkta eins og" Þið kallið allt og alla rasista svo orðið þýðir ekki neitt lengur" og "þið sem viljið eitthvað annað en ég varðandi innflytjendamál berið ábyrgð á þessu"

Versta er er að ég held að Elliði sé mjög víða í hugum og hjörtum hægri manna, hann þorir bara að segja það.


r/Iceland • • 5h ago

Óttast að búið sé að normalísera ofbeldi í kynlífi með dómi Landsréttar - RÚV.is

Thumbnail
ruv.is
28 Upvotes

r/Iceland • • 11h ago

78 fangelsisdómar fyrndust í fyrra

Thumbnail
mbl.is
13 Upvotes

r/Iceland • • 2h ago

Þarf hjálp að finna gamla netmynd

6 Upvotes

Sælir, ég þarf smá hjálp. Ég man eftir gamalli teiknimynd sem var á Kvikmynd.is á þeim tíma þegar síðan virkaði eins og íslensk útgáfa af YouTube. Í henni er sköllóttur pabbi sem rukkar barnið sitt um peninga fyrir að leika við sig. Dauð amma barnsins syngur „Simbi sjómaður“ og þar kemur meðal annars fyrir setningin: „Helvítis brundköngulóin þín“. Veit einhver hvað þetta heitir? Ég er að verða vitlaus hérna


r/Iceland • • 10h ago

Help for my Masters Project

4 Upvotes

Hello Servus,

First of all, I would like to introduce myself. My name is Dhruv, and I have recently started my Master’s in the field of Linguistics, and I am coupling it up with Maths and Statistics. I will soon be getting my Bachelor’s degree in Computer Science in Berlin.

I speak German and English. As I have started the Linguistics course, I need to find someone who does not speak the languages I speak and prepare and do assignments accordingly and write a scientific paper on it.

I would love to do it on Icelandic. Well, you will be asking why Icelandic and not any other easy, simple European language. Well, the language and the country have always fascinated me, let it be the culture, music, nature, and ofc the language.

I will be very grateful if someone volunteers for it! 🗻🌊


r/Iceland • • 2h ago

Fimmtíu þúsund skoðanir

Thumbnail
dtatdm.substack.com
4 Upvotes

Ég elska að leggjast í verkefni sem enginn bað um.

Safnaði 50.000 íslenskum pistlum, reyndi að átta mig á því hvað gerði þá skemmtilega áratugi síðar, skalaði þann smekk upp með vélmenninu og fann 70 pistla til að mæla með. Ferlið er hér að ofan, og ofarlega er hlekkur á þessa 70.

Ef ég missti af einhverjum stórkostlegum hittara má endilega skutla honum í kommentin.


r/Iceland • • 6h ago

Hvar geta bændur selt miða sem maður þarf að losna við?

5 Upvotes

Er að hugsa um Facebook nema veit ekki hvaða grúbbu

Ég keypti 3 miða (fyrir 2 vini mína) á uppistand hjá Jimmy Carr í Reykjavik (17. Desember kl 20:00) nema vinir mínir vilja ekki koma með (to be fair ég spurði þær í Janúar þannig dáldið erfitt að sjá fram í tímann) og ég þarf að selja 2 af þeim.

Ég keypti þá á 14.990 þannig ég veit heldur ekki hversu mikið ég á að selja þá fyrir mikið..

Ég myndi spyrja hana yndislegu móður mína fyrir hjálp nema nenni ekki að standa í því að hún fer að skamma mig og að vinkonur mínar ættu að borga mér of selja miðana sjálfar (nema þær vilja ekkert koma þannig mér finnst þetta ekki vera á þeirra ábyrgð)

Hvort sem er var það bara ég sem langaði mest að fara af því ég elska stand up comedy-ið hjá Jimmy Carr þannig já.. ég er í smá klemmu hérna

(Nema ef einhver hérna vill kaupa 2 miða þá er ykkur velkomið að tala betur við mig)


r/Iceland • • 3h ago

I built a tool that turns English or stiff Icelandic into Icelandic that sounds like a local wrote it, and it shows every change it makes

0 Upvotes

Hæ öll. I've been building altalandi.is

You know the problem: ChatGPT and translation tools write Icelandic that's technically correct but obviously translated. The word order is off, the English shows through, and you notice it straight away.

Altalandi does one thing: paste English or Icelandic, get back natural Icelandic. Three things make it different from asking a chatbot:

- Every change is shown, with the reason.

- The meaning is checked. It compares the result with your original. If it can't confirm the meaning held, you get your original back with a note, instead of facts changing without you knowing.

- You pick the tone: formal, neutral or warm.

What it's good for:

- Emails, reports, newsletters and announcements

- Formal text with the right specialist terms (law, medicine, computing and more)

- Proofreading: clear errors fixed, everything else offered as suggestions

- Word files in and out, PDFs in

- Websites and apps: a whole site in one go, plus Orðakista, a collection of real Icelandic button and menu text

- For developers: a CLI (`npx altalandi`) and an MCP server for Claude Code and Codex

Price: free to try without signing up (up to 2,000 characters at a time), plus a free daily allowance with an account. After that you pay by usage, with no subscription.

Privacy: free use may be kept, stripped of personal details, to improve the tool, and you can opt out. Paid use is never kept unless you opt in.

It isn't flawless, so always read important text before you send it. That's why I'd love feedback: try something you've written and tell me where it gets it wrong.

👉 altalandi.is